HK

Hraustar Konur - Meistaraflokkur Kvenna

17.03.2009 21:31:59 / Elva

Óvissu og skemmtivika....

Sælar stúlkur

Hérna eru myndirnar allar FIMM sem þarf að gera;











Hérna eru svo myndböndin þrjú til að velja eitt úr;

http://www.youtube.com/watch?v=Rvmnfuu2EPc&feature=related

http://www.youtube.com/watch?v=b7l6jg4Hlog&feature=related

http://www.youtube.com/watch?v=G5f_gbzo4Q0

p.s. Kolla þú mátt leika þér að því að fiffa myndböndin inn flott.. þetta klikkaði aftur og við nennum því ekki í þriðja sinn;)

Skipting hópa: Það er bara þannig að allir hópmeðlimir verða að taka þátt og vera virkir.

1.       Erna, Brynja I, Elín, Jolanta, og Vala

2.       Arna Sif, Guðrún ,Kolla, Tinna og Heiðrún,

3.       Marta, Brynja M, Jóna og Pavla

4.       Elva, Hildur, Elísa og Lilja

5.       Erlingur, Kiddi, Hilmar og Valli

 
Leikreglur:          

·         Leikurinn gengur út á að hóparnir fá allir úthlutað myndir og video klippu sem þeir eiga eftir sínu besta megni að herma eftir/gera eins.

·         Allt er leyfilegt og notast á við hugmyndaflugið en alltaf verður að vera að minnsta kosti einn úr hópnum.

·         Ólöglegt er þó að nota annan hópmeðlim.

·         Minnsta kosti einn úr hverjum hóp þarf að vera á hverri mynd/videoi og að allir  þurfa að vera í mynd/videoi minnsta kosti einu sinni.

·         Einn hlutur þarf alltaf að koma fram á öllum myndunum/videoi. Hver hópur velur hlutinn sjálfur.

·         Tímarammi þessa verkefnis er frá og með núna og til föstudagsins. Þið þurfið að skila þessu inn á æfingu á föstudaginn

·         Við erum dómarar í okkar eigin keppni J og kosningin fer fram á laugardagskvöld.

Síðan ætlum við að sameinast upp í Hákon Digra á laugardagskvöldið og sjá afraksturinn hjá hópunum.
Það verða verðlaun fyrir hópinn sem að lendir í 1. sæti

Ákveðið var að hafa þema um kvöldið og ræður fólk hversu langt það gengur en þemað er nördaþema (slaufa og gleraugu) (Kolla ætlar aldrei að hætta að fagna ;) ) vúhú

Vonandi er allt bara á kristaltæru... ef spurningar vakna látið í ykkur heyra :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.12.2008 01:04:11 / Lilja

Takk fyrir mig :)

Sælar skvísur og þjálfarar :)

Ég vil þakka kærlega fyrir mig á útskriftardaginn :) Rosaleg flott úr sem þið gáfuð mér og er það búið að vera á hendinni síðan ég fékk það :* kossar og knús til ykkar allra :)

Bráðum er ég að fara að stíga upp í vél á leið til Orlando yfir jól og áramót... Ég vil óska ykkur gleðilegra jóla og hafið það rosalega gott yfir hátíðarnar :)

Hlakka til að sjá ykkur þegar ég kem heim í janúar :)

knús til ykkar :)

kv
Brynja I

» 0 hafa sagt sína skoðun

22.11.2008 21:26:32 / Kolla

hæhæ krúttin okkar!

smá video hæhæ frá okkur :haha:



kv. ólf, arn og jó


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.11.2008 01:21:00 / Lilja

ný vísbending..


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.11.2008 22:54:39 / Lilja

Leikur

Vildi bara segja ykkur að við erum nokkrar að fara á Fram-Grótta á morgun (miðvikudag). Leikurinn byrjar kl. 19.30 og er í Framhúsinu.

Allir velkomnir með:haha::haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.10.2008 11:15:04 / Lilja

Matur á fösudaginn :)

Sælar skvísur Brynja I hér... stalst að skrifa undir Lilju nafni :)

Eins og þið vitið þá var ég að spá í að hafa mat á morgun (föstudag) eftir æfingu á matseðlinum er kjúllasúpa með öllu tilheyrandi :) og fl.

Viljið þið skrifa undir hverjar ætla að koma til að það sé nó til handa öllum :)

Segi ykkur staðsetinguna síðar :)

kv
Brynja I

» 11 hafa sagt sína skoðun

13.10.2008 12:50:25 / Elisa

Afmæliskortið!! ;)


Takk fyrir skemmtilegt kvöld stelpur og stákar !! :D

p.s. Muna að borga sem eiga eftir að borga :)

» 1 hafa sagt sína skoðun

10.10.2008 00:34:14 / Elisa

Sælar!

Þær sem vilja vera með í gjöf til Elínar okkar... kommenta hér fyrir neðan :)
Ef þið viljið einhverjar frekari upplýsingar þá sendið bara sms á mig (6948011) eða þér velkomið að hringja líka!!
En munið að senda fyrir annað kvöld því ég fer laugardagsmorgun að kaupa gjöfina!

Ef þið viljið leggja inná mig þá er númerið mitt: 0114-26-8511 og kennitala: 0811852209.

Sem eru með: (minni mig)

Elísa Ósk
Elsa
Lilja Lind
Tinna 
Elva
Hildur
Jóna
Marta
Erna
Brynja I
Hjördís Perla
Erlingur
Kiddi
Hilmar
Aldís
Jotlanta
Silvía
ZSofi

Rauðir eiga eftir að borga henni Elísu fyrir gjöfina!!!
Muna bloggið hennar Elsu fyrir neðan!!! koma stelpur..... borga ;) 

p.s. ef þið eruð á listanum látiði mig vita ef þið viljið ekki vera með..



» 4 hafa sagt sína skoðun

30.09.2008 11:37:13 / elsarut

SEKTIR (enn eiga margar eftir að borga)

Fundað var linnulaust í alla nótt og á endanum var sú ákvörðun tekin að hækka ekki vexti, þ.e.a.s vextir verða ekki lagðir ofan á sektir sökum skorts á fjármagni í umferð8| Ætti þetta að kæta marga :haha:
En drífið ykkur svo að borga þetta krúsídúllur...


Nafn                                       Skuldir og mánaðargjaldið

Arna Sif                                  500

Brynja M.                                500

Elín Anna                                750 (mán+1seint)

Elsa Rut                                  750 (mán+1seint)

Elva                                         500

Erna                                         2500 (mán+4seint+1skróp)

Jóna Sigga                               500

Lilja                                         500

Marta                                       500 (mán+1seint)

Kolla                                       500

Tinna                                       500

Elísa                                        1000 (mán+2seint)

Silvía                                       2750 (mán+2seint+1skróp+1seint í leik)

Hildur                                      500

Kiddi                                       500 (2seint)



Þetta fer bara inn á okkar reikning sem er efst á síðunni hérna hægra megin undir sjóðurinn okkar!!! MUNA borga fyrir 7. okt annars fara vextir að tikka inn !!

Stelpur kíkið á mailin ykkar því ég var að senda á ykkur hvað við eigum að borga fyrir peysurnar og buxurnar! Það verður eiginlega að borga fyrir helgi.

» 9 hafa sagt sína skoðun

25.09.2008 23:08:32 / elsarut

Til Auðar og Rutar

Jæja stelpur mínar, ég ætla að vona að þið lesið ennþá bloggsíðuna okkar ;) hehe

Ég ætla hér með að skora á ykkur að gera einn góðan og vænlegan pistil hérna um veru ykkar í DK :haha:

Ég vona að ég fái góðar undirtektir frá hinum HK-skvísunum :!:
Þið verðið að peppa þær stelpur 8) koma svo

Við söknum ykkar ekkert smá mikið og það væri mjög gaman að fá nokkur vel valin orð hérna inn :haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.09.2008 11:58:57 / elsarut

Mánudagarnir langþráðu...

Takk fyrir síðast, ekki leiðinlegt að fá sigur í 1. heimaleiknum :haha:
Eitt gott klapp fyrir því

En þá verðum við bara að snúa okkur að næsta leik sem er kl.16.00 í Kaplakrikanum á laugardaginn næsta 27. september.
Og að sjálfsögðu er stefnan tekin á sigur 8)

Æfingin í dag er kl.17:15 (skv. plani eru lyftingar og síðan bolti)
Mæting 17:05 annars er bara ching ching

Lið umferðarinnar: http://www.handbolti.is/?p=101&i=23846
Við eigum nú  bara nokkuð í þessu ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.09.2008 21:50:37 / ArnaSif

Stund stundanna

Stelpur stelpur,  þá er loks komið að því aftur.. HSÍhófið er rétt handan við hornið. Ég get varla lýst því hvað ég er spennt. Dagskráin er líka mögnuð. Við í partynefndinni tókum að okkur að skipuleggja fyrripart dagsins. Eins gott að þið sofið vel nóttina áður svo þið meikið alla 24 tímana.. trúið mér þið viljið ekki missa af þessu.. />

Ég fekk mail í gær frá Þorbjörgu J. Gunnarsdóttir og í því skemmtilega bréfi var einmitt dagskráin og allt um allt eiginlega. Ég skal bara fara yfir dagskrána með ykkur lið fyrirlið. Ííí ég er svo spennt sko..! />

  />

Laugardagur 28.September 2008 – HSÍ hóf />

(Dagskrá HK) />

  />

09:00 Sharp! />

Mæting í hátíðarsal Digranes (Hákon Digra). Þar verður sameiginlegur morgunmatur með karlkynsdýrunum í mst. HK. Búist er við mjög góðri mætingu, allavega að þeirra hálfu þar sem þetta eru félagsverur af guðs náð. Þannig að við skulum reyna að mæta ferskar og brosandi.. koma svo. Þess má líka geta að strákarnir verða með okkur allan daginn. Gunni Stuð og Bjössi bomba skipulögðu þetta þess vegna með okkur. />

  />

10:15 />

Förum við út í rútu sem verður tilbúin fyrir utan og lagt verður af stað í kramhúsið. Þar ætla þær að bjóða okkur upp á soul- joga. Þetta er e-ð nýtt sem þær eru að setja af stað og því fáum við þetta á mjög góðum prís. Eftir þennan tíma eigum við allavega að vera komin vel út fyrir okkar hefðbundna þægindahring. Það verður mikið um snertingar og birtingar. />

  />

13:00 />

Farið verður með hópinn í vesturbæjarlaug. Ýmsir leikir verða teknir, verður hópnum skipt í nokkra minnihópa og keppt verður í ýmsu. T.d. verður einn leikurinn þannig að liðið sem býr til besta heróp fyrir HK vinnur. Svo sömuleiðis verður liðið sem býr til besta fuck-óp heiðrað vel. (Fuck-óp snýst um að rakka önnur lið niður). Þetta skapar allt góðan móral. Það er einmitt það sem sera Kiddi leggur upp með innan veggja HK. />

  />

15:30 />

Farið verður upp í Digró aftur og ætlast er til að allir fara heim til sín og gera sig klára fyrir kvöldið. />

  />

  />

17:45 />

Fyrirparty hjá okkur verður sameiginlegt með Fram og Fylki og verður á Celtic Cross í ár. Hafa ýmsar hugmyndir um þema komið upp hjá okkur. Við fáum nefnilega aldrei nóg af því að hafa þema. Hugmyndin er að láta sérsauma á okkur rauða og hvíta kjóla. Emelía Fernandez (http://www.connected-women.com/is/directory/view/nykki) er að bjóða okkur HKingum mjög gott verð fyrir sitt stuff.. þetta er nánast fríkeypis.. />

  />

19:00 />

Já, við mætum smá late.. samt svona fashionable late eins og við Íslendingar kunnum bestir. Hófið verður að Gullhömrum í Grafarvogi (http://www.gullhamrar.is/) í ár vegna svaðalegrar fjölgunnar á liðum í deildunum. En matseðillinn hljómar svo: />

HUMARSÚPA
rjómalöguð, með grilluðum humarhölum
1 glas.Chateau Ste Michelle Riesling 2006 Columbia Valley – Bandaríkin

 />


LAMBAHRYGGUR
ofnbakaður með moðsteiktum lambaskanka ogrósmarínsósu
1 glas. La Montesa Reserva Selección Especial 2001 Rioja -Spánn

 />

BANANA- OG SÚKKULAÐIFRAUÐ
með ferskum jarðarberjum, sítrusrjómaog vanillusósu
1 glas. Montes Late Harvest Gewurztraminer 2006 Curico Valley– Chile. />

  />

Svo kunnið þið væntanlega restina.. Ég þarf varla að kyngja þetta fyrir ykkur – mér finnst nóg að tyggja þetta ofan í ykkur. />

Ég er svo spennt fyrir þessu.. get varla lýst því.. eða jú ég gæti það reyndar því ég efast ekki um að þið eruð líka komnar með fiðrildi í magann. />

En vinsamlegast athugið að það tók á að plana þennan dag svo þið getið allavega mætt á réttum tíma. Það er eiginlega það minnsta sem þið getið gert. Ég þori ekki einu sinni að biðja ykkur um að mæta fín og sæt… vil ekki biðja um of mikið, ég kann mig.. />

  />

Anyways, HK uppáhaldið okkar hann Alex og reyndar co. ætla að bjóða okkur í ár. En fixið er sko að til þess að fá ókeypis þurfum við að taka maka með okkur. />

Ég veit hvað þið eruð nokkrar að hugsa.. “oo guð, ég á ekki einn/eina slíkan/slíka” En no worries.. Arna frænka er búin að finna nokkra aðila sem eru tilbúnir til að step up og taka slík hlutverk að sér og það án greiðslu. />

  />

Kommentið hér fyrir neðan svo við getum drífið okkur í því að kaupa miðana. Og þegar ég segi drífið ykkur þá meina ég NÚNA! />

  />

F.h. Partynefndar />

Arna Sif partyhæna..    />

  />


» 12 hafa sagt sína skoðun

15.09.2008 15:06:39 / Lilja

SEKTIR

En eru einhverjar eftir að borga sektir og mán.gjald... Sem er ekki gott:^)

Arna Sif =1000kr. (en vantar 500 kr. upp á sem er mán.gjald.)

Elín Anna =250kr.

Erna =750kr.

Lilja Lind =750kr.

Marta =750kr.

Silja =250kr.

Tinna Björk =500kr. + 500 kr.

Sif =250kr. + 500 kr.

Silvía =250kr. + 500 kr.

Hildur =250kr.

Erlingur =1000kr.

+500kr. á þessar upphæðir (sem er mánaðargreiðslan)

Allar hinar sem eru ekki á þessum lista skulda 500kr. mánaðargreiðslu

En eiga samt Anna María, Guðrún og Sylvía eftir að borga 3.294 kr. fyrir strandhandboltann :evil::^):evil:


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 24
Money Money
Klukkan
HK - börn
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti